Fréttir
Stöðvun togveiða á gulllaxi
Með vísan til 2. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 717/2000 um veiðar á gullaxi hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra falið Fiskistofu að fella úr gildi öll leyfi til gulllaxveiða frá og með 7. júní 2010.
Ástæðan er ráðgjöf Hafrannsóknastofnunarinnar um afla fiskveiðiárið 2009/2010. Vísitölur úr stofnmælingum botnfiska í mars og október, afli á sóknareiningu veiðiskipa ásamt aldurs- og lengdardreifingum úr afla bendi til að afli sé umfram árlega afrakstursgetu stofnsins.
Afli íslenskra skipa í gulllaxi hefur aukist verulega undanfarin fiskveiðiár. Á fiskveiðiárinu 2002/2003 var aflinn 2.427 tonn en á yfirstandandi fiskveiðiári er hann kominn í 15.371 tonn. Á meðfylgjandi mynd má sjá heildarafla íslenskra skipa í gulllaxi frá fiskveiðiárinu 2002/2003. Ef smellt er á myndina kemur hún í fullri stærð.
