Fréttir

Tegundaskipting afla í strandveiðum

1.6.2010

Fiskistofa hefur nú gefið út 558 leyfi til strandveiða og hefst nýtt veiðitímabil í dag. Flest eru leyfin á veiðisvæði A og D. Í maí mánuði lönduðu 463 bátar með strandveiðileyfi afla í 2.386 löndunum.

Heildaraflinn í strandveiðunum í maí var um 1.300 tonn. Aflaheimildir voru fullnýttar á tveimur svæðum, á svæði A sem nær frá Eyja og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps og á svæði D sem nær frá Sveitafélaginu Hornafirði til Borgarbyggðar. Einungis 36% af aflaheimildum voru nýttar á svæði B og 39% á svæði C. Ónýttar aflaheimildir flytjast á milli mánaða og munu um 228 tonn flytjast til júní mánaðar á svæði B og 233 tonn á svæði C.

Afli í hverjum róðri var mjög mismunandi eftir svæðum. Mestur var hann á svæði A eða 649 kg en minnstur á svæði C, 376 kg að meðaltali í róðri.

Af tegundasamsetningu í strandveiðunum er mest um þorsk í aflanum eða 87,9% og ufsi var 10,5% . Tegundasamsetningin er breytileg eftir svæðum. Á svæði A var þorskaflinn 98% en á svæði B var þorskaflinn hins vegar rúm 73%. Á meðfylgjandi myndum má sjá tegundaskiptinguna eftir svæðum og ef smellt er á myndirnar þá koma þær upp í fullri stærð.

Strandveidar_mai
Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner5
Þetta vefsvæði byggir á Eplica