Fréttir

Veiðar erlendra skipa

Veiðar erlendra skipa í íslenskri lögsögu – aflinn í apríl 2010

4.6.2010

Alls voru fimm færeysk línuskip að veiðum í íslenskri lögsögu í aprílmánuði. Heildarafli þeirra var 335 tonn. Mest var um keilu í aflanum eða 98 tonn og þorskaflinn var 95 tonn.

Heildarbotnfiskafli færeyskra skipa það sem af er árinu er nú tæp 635 tonn. Á sama tíma í fyrra voru færeysk skip hins vegar búin að veiða 628 tonn. Heildarbotnfiskaflinn er því 1,1% meiri í ár en fjóra fyrstu mánuðina í fyrra. Þorskaflinn er kominn í 146 tonn miðað við 166 tonn á sama tAtlantic_codíma í fyrra en heimild færeyskra skipa á árinu er 1.200 tonn.

Eitt norskt skip var einnig að veiðum hér við land í apríl og veiddi það tæp 190 tonn af botnfiski samkvæmt aflatilkynningum til Landhelgisgæslunnar. Mest var um keilu í aflanum eða tæp 81 tonn og löngu, 74 tonn.

Nýjar töflur sem sýna skiptingu afla erlendra ríkja eftir tegundum og mánuðum, bæði aflatilkynningar til Landhelgisgæslunnar og nýjustu löndunartölum er hægt að skoða hér.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner6
Þetta vefsvæði byggir á Eplica