Fiskveiðieftirlit á grunnslóð
Starfsmenn frá Fiskistofu og Landhelgisgæslu fóru í upphafi júní í sinn annan leiðangur á árinu til fiskveiðieftirlits á grunnslóð. Sem fyrr var farið á Baldri og hófst leiðangurinn 1. júní og honum lauk í dag, 10. júní. Leiðinda veður setti svip sinn á fyrstu daga leiðangursins og svo kom sjómannadagshelgin og þá var að sjálfsögðu legið í landi. Alls var farið um borð í 36 báta, þar af 27 handfærabáta, 1 dragnótarbát og 8 grásleppubáta.
Veiðileyfi og afladagbækur voru skoðaðar, veiðarfæri skoðuð og mæld og aflameðferð könnuð. Einnig voru framkvæmdar lengdarmælingar á afla. Gerðar voru athugasemdir við ýmislegt sem betur mátti fara og alls voru gerðar 12 brotaskýrslur.
Augljóslega er mikil þörf á því að halda uppi eftirliti á grunnslóð með þeim hætti sem Fiskistofa hefur gert undanfarin ár, nú og í fyrra í samstarfi við Landhelgisgæsluna, og gera má ráð fyrir því að slíkir eftirlitsleiðangrar verði fleiri á árinu.

