Úthafsveiðar
Íslensk skip héldu áfram veiðum á kolmunna í færeyskri lögsögu í maí mánuði líkt og mánuðinn þar á undan. Aflinn var 26.694 tonn í maí og er heildarafli íslenskra skipa í kolmunna nú kominn í 82.953 tonn.
Veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum eru vart farnar af stað en aflinn í maí var einungis 2.153 tonn. Það sem af er ári er
heildaraflinn kominn í 3.625 tonn en á sama tíma í fyrra var hann 22.613 tonn.
Veiðar á úthafskarfa á Reykjaneshrygg hófust í maí likt og undanfarin ár. Aflinn var 4.698 tonn og fékkst hann innan landhelgislínu.
Uppfærðar töflur, sem sýna skiptingu afla íslenskra skipa í úthafstegundum eftir veiðisvæðum er hægt að skoða hér.

