Fréttir
Afladagbókarvefur Fiskistofu
Nýr upplýsingavefur fyrir afladagbækur hefur litið dagsins ljós á slóðinni http://afladagbok.fiskistofa.is. Á vefnum verður að finna ýmsar upplýsingar varðandi rafrænar afladagbækur, t.a.m. notendahandbók sem unnið er að þessa stundina, ýmis svör við algengum spurningum auk tilkynninga varðandi uppfærslur á hugbúnaðinum sem hægt verður að hala niður af vefsvæðinu og setja upp á einfaldan hátt.

