Fréttir

Veiðir þú merkta laxfiska?

Árvekni varðandi merkingu á veiddum fiskum getur borgað sig

2.7.2010

Þann 22. júní síðastliðinn voru dregin út verðlaun vegna skila á merkjum úr lax- og silungsveiði á árinu 2009 en verðlaunahafarnir voru dregnir út úr hópi 580 aðila, sem skilað höfðu örmerkjum eða öðrum fiskmerkjum úr ýmsum veiðiám til lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu á því ári. Slík verðlaun hafa nú verið veitt í mörg ár og virðist það almennt hafa ýtt undir það að veiðimenn skili inn merkjum enda hefur hátt hlutfall þeirra, sem skila inn merkjum, fengið verðlaun.

Eftirfarandi 5 aðilar hlutu verðlaunin að þessu sinni:

  1. verðlaun, sem voru flugustöng, komu í hlut Pétur K. Hlöðverssonar, Breiðvangi 68, Hafnarfirði fyrir 4 kg. örmerkta laxhrygnu, sem hann veiddi í  Eystri-Rangá 3. ágúst 2009.
  2. verðlaun, sem voru kaststöng, komu í hlut Gunnlaugs J. Rósarsonar, Marteinslaug 10, Reykjavík, fyrir 3 kg. örmerkta laxahrygnu, sem hann veiddi  í Elliðaám 9. ágúst 2009.
  3. verðlaun, sem voru fluguhjól, komu í hlut Skúla Sigurðssonar, Iðu 2, Biskupstungum fyrir 2,3 kg. örmerkta laxahrygnu, sem hann veiddi lax í Eystri-Rangá 10. ágúst 2009.
  4. verðlaun, sem voru kasthjól, komu í hlut Guðbrandar Einarssonar, Berghólum 19, Selfossi fyrir

1,8 kg. örmerkta laxahrygnu, sem hann veiddi lax í Ytri-Rangá 1. september 2009.

5.   verðlaun sem voru  flökunarhnífur, komu í hlut Gunnars Hannessonar, Reykási 37, Reykjavík fyrir 2 kg. örmerkta laxahrygnu, sem hann veiddi lax í Ytri-Rangá 16. október 2009.

verdlaunahafi_merktir_laxfiskar_2010

Vinningshöfum er hér með óskað innilega til hamingju !

Hér á landi eru laxar og silungar merktir með ýmis konar merkjum. Algengustu merkin eru örmerki, sem sett eru í trjónu laxaseiða á gönguseiðastigi og slöngumerki, sem sett eru undir bakugga á stálpuðum laxi eða silungi, en einnig hefur notkun útvarpsmerkja og mælimerkja farið vaxandi. Þegar um örmerkingu er að ræða þarf að skera snoppuna af laxinum við augun og setja í sérstaka merkjapoka úr plasti, sem liggja frammi í veiðihúsum um land allt. Pokana þarf einnig að fylla út og skila til lax- og silungveiðisviðs Fiskistofu, Dalshrauni 1, Hafnarfirði. Oft hafa veiðifélög aðstöðu til að safna saman slíkum merkjapokum í frysti og skila þeim til Fiskistofu í lok sumars. 

Árvekni stangaveiðimanna og forsvarsmanna veiðifélaga er lykillinn að því að fiskmerkingar nái tilætluðum árangri. Veiðimenn þurfa að grannskoða fiskinn, sem þeir veiða, með tilliti til útlits, útvortis merkinga, uggaklippinga og almenns ástands á uggum. Klipptur veiðiuggi er ætíð vísbending um örmerki í trjónu laxins en trosnaðir eða eyddir uggar geta verið vísbending um að fiskurinn hafi sloppið úr eldiskví, þótt slíkt sé ekki einhlítt og þurfi staðfestingar við t.d. með hreisturlestri. Þótt kvíaeldi sé enn takmarkað hér við land eru möguleikar á því að slíkir laxar villist annars staðar frá og jafnframt er mögulegt að hingað komi aðrar laxategundir, svo sem bleiklaxar. Veiðimenn eru því hvattir til að vera á varðbergi gagnvart grunsamlegum fiskum.  

 



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner3
Þetta vefsvæði byggir á Eplica