Strandveiðarnar í júní
Fiskistofa hefur nú gefið út 710 leyfi til strandveiða á þessu ári. Flest eru útgefin leyfi á veiðisvæði A með 230 leyfa og svæði D með 184 leyfi.
Í júní mánuði lönduðu 636 bátar í 4.143 löndunum. Að meðaltali landaði hver bátur því 6,5 sinnum í júní mánuði í strandveiðunum.
Heildaraflinn í strandveiðunum í júní voru rúm 2.173 tonn. Aflaheimildir hafa verið fullnýttar fyrir tímabilið maí og júní á svæði A sem nær frá Eyja og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps og hlutfallsnýting á svæði B og D er 97% en á svæði C er nýtingarhlutfallið 88%.
Ónýttar aflaheimildir flytjast á milli mánaða og munu um 104 tonn flytjast til júlí mánaðar á svæði C og 22 tonn á svæði B og 20 tonn á svæði D.
Meðalafli í hverjum róðri var mjög mismunandi eftir svæðum. Mestur var hann á svæði A eða 651 kg en minnstur á svæði C, 444 kg að meðaltali í róðri.
Af tegundasamsetningu í strandveiðunum er mest um þorsk í aflanum eða 76,1% og ufsi var 21,7% . Tegundasamsetningin er breytileg eftir svæðum. Á svæði A var þorskaflinn 92,9% en á svæði D var þorskaflinn hins vegar rúm 58,4%. Á meðfylgjandi mynd má sjá tegundaskiptinguna eftir svæðum.

