9 veiðileyfissviptingar í júní
9 skip voru svipt veiðileyfi í júní, ýmist í tilgreindan tíma eða þar til úrbætur hafa verið gerðar vegna þeirra brota sem sviptingin varðar. Flestar voru sviptingar vegna veiða umfram aflaheimildir, alls 5. Sé veitt umfram aflaheimildir skips tilkynnir Fiskistofa viðkomandi útgerð um aflamarksstöðu skipsins og fær útgerðin þrjá virka daga til að leiðrétta hana. Sé það ekki gert er umrætt skip svipt veiðileyfi þar til aflamarksstaða þess hefur verið leiðrétt.
Skylt er að skila frumriti afladagbókar fyrir hvern mánuð ekki seinna en 15. næsta mánaðar. Hafi frumrit ekki skilað sér sendir Fiskistofa viðkomandi útgerð tilkynningu þess efnis og sé ekki brugðist við henni er skipið svipt veiðileyfi þar til frumritið berst Fiskistofu. Í júní voru tvö skip svipt veiðileyfi vegna vanskila á afladagbók.
Að lokum er svipt vegna ákvörðunar í tveim brotamálum sem komu upp í eftirliti á vegum eftirlitsmanna Fiskistofu. Í báðum tilvikum er um löndun framhjá hafnarvog að ræða og eru bæði skipin sem um ræðir svipt veiðileyfi í 6 vikur. Aflinn sem landað var framhjá hafnarvog er jafnframt skráður til aflamarks á skipin.
Skv. 21. gr. laga nr. 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar ber Fiskistofu að birta opinberlega upplýsingar um afturköllun veiðileyfa o.fl. Nánari upplýsingar um veiðileyfissviptingar í júní mánuði er að finna hér.

