Veiðar erlendra skipa
Veiðar erlendra skipa - aflinn í maí 2010
Alls voru átta færeysk línuskip að veiðum í íslenskri lögsögu í maí mánuði og eitt uppsjávarveiðiskip sem var á síldveiðum. Heildarafli línuskipanna var 790 tonn. Mest var um keilu í aflanum, 281 tonn og þorskaflinn var 169 tonn. Síldarafli færeyska skipsins Nordborg var 2.930 tonn.
Heildarbotnfiskafli færeyskra skipa á fimm fyrstu mánuðum ársins er nú tæplega 1.425 tonn. Á sama tíma í fyrra voru færeysk skip hins vegar búin að veiða 979 tonn. Heildarbotnfiskaflinn er því ríflega 45% meiri í ár en á síðasta ári. Þorskaflinn er kominn í 316 tonn miðað við 244 tonn á sama tíma í fyrra en heimild færeyskra skipa á yfirstandandi ári eru 1.200 tonn.
Eitt norskt skip var einnig að veiðum hér við land í maí og veiddi það tæp 53 tonn af botnfiski samkvæmt aflatilkynningum til Landhelgisgæslunnar. Mest var um keilu í aflanum eða tæp 29 tonn og löngu, 74 tonn. Að auki var grænlenska skipið Polar nanoq á veiðum á úthafskarfa á Reykjaneshrygg.
Nýjar töflur sem sýna skiptingu afla erlendra ríkja eftir tegundum og mánuðum, bæði aflatilkynningar til Landhelgisgæslunnar og nýjustu löndunartölum er hægt að skoða hér.

