Sjóeftirlit á grunnslóð
Dagana 4. til 12. júlí s.l. voru eftirlitsmenn Fiskistofu í samstarfi við LHG við grunnslóðareftirlit. Til þess var nýttur sjómælingabáturinn Baldur. Þetta var þriðji slíki leiðangurinn í ár og í þetta skiptið hamlaði veður töluvert eftirliti.
Alls var farið um borð í 23 báta, strandveiðibáta, aðra handfærabáta og línubáta. Veiðileyfi bátanna, afladagbækur, haffæri, réttindi skipstjórnarmanna, aflasamsetning og lengd afla eru meðal þess sem skoðað er í slíkum ferðum. Í þremur tilvikum voru afladagbækur ekki um borð og í tveimur tilvikum voru bækurnar ekki rétt út fylltar. Einum báti var fylgt í land vegna réttindamála skipstjóra og niðurstöður lengdamælinga leiddu til einnar skyndilokunar.
Það er mat starfsmanna Fiskistofu að samstarf sem þetta við LHG sé árangursríkt og eftirlit stofnunnar á grunnslóð sé mikilvægur þáttur í fiskveiðieftirliti stofnunarinnar

