Fréttir

Makrílveiðar strandveiðibáta

16.7.2010

Eins og kunnugt er hefur reglugerð nr. 285/2010, um stjórn makrílveiða skipa árið 2010, verið breytt þannig að fiskiskipum sem leyfi hafa til strandveiða verði heimilt að stunda makrlveiðar á handfæri og línu. Eru þær veiðar háðar sérstöku leyfi Fiskistofu, sjá hér. Þar sem þetta ber brátt að þarf Fiskistofa að leysa úr nokkrum viðfangsefnum áður en hægt verður að gefa út leyfi grundvelli reglugerðarinnar. Beðist er velvirðingar á því og biðjum við menn að sýna biðlund. Tilkynnt verður heimasíðu Fiskistofu, svo fljótt sem verða má, hvenær útgáfa leyfa getur hafist og hvernig framkvæmdinni verður háttað.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica