Fréttir
Strandveiðibátar og makríll
Vegna breytingar á reglugerð um makrílveiðar sem heimilar strandveiðibátum veiðar á makríl á handfæri og línu hefur enn ekki verið skorið úr um öll þau álitamál sem fylgja breytingunni. Þó er ljóst að almennar reglur sem gilda um báta í strandveiðikerfinu munu eiga við á makrílveiðunum og er því ekki heimilt að halda til veiða í dag, á laugardag og á sunnudag. Fiskistofa mun á mánudag gefa út nánari leiðbeiningar um veiðarnar.

