Fréttir

Makríll og strandveiðar - leiðbeiningar

19.7.2010

Í farvatninu er breyting á breytingu á reglugerð um makrílveiðar. Breytingin felur í sér að ekki þarf sérstakt leyfi fyrir þá strandveiðibáta sem ætlað er að gera út á makrílveiðar á handfæri og línu sbr. 2. tl. 2. gr. reglugerðar nr. 285/2010 um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2010. Innsk. 20.júlí: Breytingin hefur nú verið birt og er hana að finna hér.

Nokkur mikilvæg atriði sem Fiskstofa vill benda á varðandi ofangreindar veiðar eru listuð hér að neðan. Áhersla er lögð á að ekki er um tæmandi samantekt á reglum um veiðarnar að ræða heldur leiðbeiningar varðandi þau atriði sem helst hefur verið spurt um.

  • Bátur með strandveiðileyfi þarf ekki sérstakt makrílveiðileyfi.
  • Reglur um strandveiðibáta gilda á makrílveiðum, þ.e. tilkynningar, heimilir veiðidagar, lengd veiðiferða, veiðisvæði o.þ.h. Takmörkun um hámarsmagn á dag á ekki við um makrílafla.
  • Ekki er heimilt að sækja í aðrar tegundir en makríl á þeim dögum sem auglýstir eru sem „banndagar“ á strandveiðum. Meðafli í kvótabundnum tegundum mun verða meðhöndlaður líkt og annar afli sem strandveiðibátar veiða umfram leyfilegt magn, þ.e. beitt verður álagningu vegna ólögmæts sjávarafla.


Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner1
Þetta vefsvæði byggir á Eplica