Rafrænar afladagbækur
Netsamband og sending gagna
Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 557/2007 um afladagbækur skal rafræn afladagbók ávallt vera um borð í fiskiskipi á meðan veiðiferð stendur og þar til löndun og vigtun afla þess hefur verið lokið. Þess ber að geta að það er ekki nauðsynlegt að vera sítengdur við netið þegar fært er í rafrænu afladagbókina vegna þess að afladagbókin safnar gögnunum saman í gagnagrunn sem síðar er hægt að senda úr þegar tölvan er í netsambandi en samkvæmt 1. mgr. sömu greinar reglugerðar nr. 557/2007, þarf einungis að senda gögnin úr henni einu sinni í mánuði eða eigi síðar en innan tveggja vikna frá lokum hvers mánaðar. Þar af leiðandi er heimilt að fara með tölvuna, sem afladagbókin er uppsett á, frá borði og senda gögnin úr landi ef t.d. engin nettenging er um borð, svo lengi sem það er gert innan tveggja vikna frá lokum hvers mánaðar. Einnig geta þeir sem ekki komast með tölvuna sína frá borði orðið sér úti um svokallaðan 3G pung frá einhverri af netþjónustunum sem bjóða upp á slíkt. Það er mjög ódýr og þægileg lausn fyrir þá sem hafa ekki annan netbúnað um borð. Þeir geta þá sent gögnin úr afladagbókinni þegar báturinn er nálægt landi og í góðu netsambandi. Fiskistofa vill jafnframt minna á afladagbókarvefinn sem heldur utan um ýmsar upplýsingar og tilkynningar er varða rafrænar afladagbækur.

