Fréttir
Úthlutað viðbótaraflamark
Fiskistofa hefur úthlutað til skipa því viðbótaraflamarki í þorski og ýsu sem tilkynnt var um með reglugerð í síðustu viku. Alls fengu 600 skip úthlutað aflamarki allt frá 1 kg upp í 26,6 tonn í þorski og frá 1 kg upp í 22,6 tonn í ýsu. Lista með úthlutun til einstakra skipa má sjá hér. Tilkynningar um úthlutun verða sendar til þeirra sem fengu úthlutað 10 kg eða meira.

