Fréttir

Veiðar erlendra skipa

Veiðar erlendra skipa - aflinn í júní 2010

9.8.2010

Alls voru tíu færeysk línuskip að veiðum í íslenskri lögsögu í júnímánuði og eitt uppsjávarveiðiskip á síldveiðum. Heildarafli línuskipanna var 536 tonn. Mest var um keilu í aflanum, 165 tonn og þorskaflinn var 109 tonn. Síldarafli færeyska skipsins Nordborg var 2.930 tonn.

Heildarbotnfiskafli færeyskra skipa á fyrri helmingi ársins er nú tæplega 1.962 tonn. Á sama tíma í fyrra var afli færeyskra skipa hins vegar 1.595 tonn. Heildarbotnfiskaflinn er því ríflega 23% meiri í ár en á síðasta ári. Þorskaflinn er kominn í 425 tonn miðað við 345 tonn á sama tíma í fyrra en heimild færeyskra skipa á yfirstandandi ári eru 1.200 tonn.

Eitt norskt skip var einnig að veiðum hér við land í júní og veiddi það tæp 53 tonn af botnfiski samkvæmt aflatilkynningum til Landhelgisgæslunnar. Mest var um keilu í aflanum eða tæp 29 tonn og löngu, 11 tonn. Að auki var grænlenska skipið Polar nanoq á veiðum á úthafskarfa á Reykjaneshrygg.Atlantic_cod

Nýjar töflur sem sýna skiptingu afla erlendra ríkja eftir tegundum og mánuðum, bæði aflatilkynningar til Landhelgisgæslunnar og nýjustu löndunartölum er hægt að skoða hér.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner5
Þetta vefsvæði byggir á Eplica