Fréttir

Sjóeftirlit á grunnslóð

17.8.2010

Dagana 3. til 15. ágúst s.l. voru eftirlitsmenn Fiskistofu við veiðieftirlit á grunnslóð í samstarfi við Landhelgisgæsluna. Var þetta fjórði sameiginlegi eftirlitsleiðangur stofnananna nú í sumar og nú sem fyrr var sjómælingabáturinn Baldur notaður við verkefnið. Farið var frá Reykjavík og norður með vesturlandi. Var byrjað á því að fara um borð í strandveiðibáta á Breiðafirði en þaðan var haldið norður í Húnaflóa og þaðan austur á Fljótagrunn, Skjálfandaflóa og Grímseyjarsund.

Alls var farið um borð í 33 báta í ferðinni, þar af 23 handfærabáta, 9 línubáta og 1 netabát. Könnuð voru réttindi skipstjórnarmanna og haffæri bátanna en einnig voru veiðileyfi, veiðarfæri, afladagbækur og aflasamsetning skoðuð og afli var lengdarmældur. Leiddu mælingar eftirlitsmanna í leiðangrinum til 4 skyndilokanna vegna þess að of hátt hlutfall af smáfiski reyndist vera í afla bátanna. Gerðar voru 8 skýrslur vegna brotamála sem upp komu í leiðangrinum.

Starfsmenn Fiskistofu telja samstarf við Landhelgisgæsluna mjög mikilvægt og dæmin sanna að leiðangrar sem þessir, sem farnir hafa verið í sumar, eru árangursríkir og efla mjög eftirlit á grunnslóðinni.



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica