Úthlutun aflamarks 2010/2011
Nýtt fiskveiðiár gengur í garð á morgun og hafa starfsmenn Fiskistofu tekið saman helstu upplýsingar um úthlutun aflaheimilda á fiskveiðiárinu 2010/2011, sjá hér. Í skjölunum er að finna upplýsingar um úthlutun eftir skipum, útgerðarflokkum, heimahöfnum, fyrirtækjum o.fl.
Alls er úthlutað 288.042 tonnum, samanborið við 310.451 tonn, sem úthlutað var við upphaf líðandi fiskveiðiárs. Úthlutun aflaheimilda ræðst af ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um leyfilegan heildarafla á hverju fiskveiðiári og orsakast þessi skerðing helst af lækkun leyfilegs heildarafla í ýsu og nokkrum flatfisktegundum. Auk þessa er ekki úthlutað aflamarki í úthafsrækju líkt og áður, þar sem þær veiðar hafa verið gefnar frjálsar á næsta fiskveiðiári. Ekki hefur verið gefinn út leyfilegur heildarafli í síld og því er ekki úthlutað aflamarki í síld.
Sé litið til úthlutunar í þorskígildistonnum er aukning, þ.e. 270.373 þorskígildistonnum er úthlutað nú við upphaf fiskveiðiárs 2010/2011 samanborið við 256.687 í fyrra. Þessi aukning á úthlutun í þorskígildistonnum er tilkomin vegna breytinga til hækkunar á þorskígildisstuðlum nokkurra tegunda, sjá nánar í ofantengdum skjölum. Þorskígildi eru reiknuð árlega, þ.e. hver fisktegund fær stuðul sem lýsir verðmæti hennar sem hlutfalli af verðmæti þorsks á tilgreindu 12 mánaða tímabili á hverju ári.
Líkt og í fyrra fer stærstur hluti aflamarks í þorskígildum talið til skipa með heimahöfn í Reykjavík, næst mest til Vestmannaeyja, og þar næst Grindavíkur. Alls fer um 34% aflamarks til skipa með heimahöfn á þessum stöðum.
Í þorskígildum talið fá skip í eigu HB Granda hf. úthlutað mestu, sé úthlutun þeirra lögð saman, þar á eftir Brim hf. og Samherji hf. Rétt er að árétta að yfirlitið yfir heildarúthlutun til skipa í eigu sama fyrirtækis er ekki gert samkvæmt reglum um hámarkshandhöfn aflaheimilda þar sem meðal annars er litið til rekstraraðila skipanna auk fleiri þátta. Verður slík úttekt gerð á næstu vikum og birt á vef Fiskistofu. Meðfylgjandi samantekt um aflamark eftir fyrirtækjum þykir þó gefa ágætt yfirlit um það hvernig úthlutað aflamark skiptist á milli fyrirtækja.
Fiskiskipum í flotanum sem fá úthlutað aflamarki fækkar um 34 á milli ára, ekki er að greina fækkun í einum útgerðarflokki umfram aðra. Um miðjan næsta mánuð, þegar endanlegar upplýsingar um vigtun og skráningu afla líðandi fiskveiðiárs liggja frágengnar fyrir, mun Fiskistofa gera frétt um nýtingu aflaheimilda á fiskveiðiárinu 2009/2010 og skiptingu afla eftir tegundum í ýmsar ívilnanir.

