Gullkarfi - djúpkarfi
Aflamark í karfa í hefur fram til þessa verið til veiða á bæði gullkarfa og djúpkarfa. Í samræmi við breytingu á lögum um stjórn fiskveiða frá því í mars s.l., sjá hér, hefur aflahlutdeildum karfa verið skipt upp í aflahlutdeildir í gullkarfa og í djúpkarfa.
Við úthlutun aflamarks 1. september s.l. var því úthlutað aflamarki í báðum tegundum. Úthlutað var 30.000 tonnum í gullkarfa og 10.000 tonnum í djúpkarfa í samræmi við ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um leyfilegan heildarafla hvorrar tegundar fyrir sig.
Í djúpkarfa fengu 68 skip úthlutað aflamarki, allt frá rúmum 846 tonnum niður í 347 kg. Öll skip sem fengu úthlutað aflamarki í djúpkarfa eru jafnframt með aflamark í gullkarfa. 421 skip fengu úthlutað þeim 30.000 tonnum sem til rástöfunar eru í gullkarfa. Á vef Fiskistofu er hægt að sjá nákvæmlega hvaða skip eru með aflahlutdeildir í tiltekinni valinni tegund með því að fylgja þessar slóð.

