Fréttir

Minna flutt út af óunnum ísfiski

6.9.2010

Á nýliðnu fiskveiðiári var fluttur út óunninn ísaður fiskur á erlenda fiskmarkaði með veiðiskipum og gámum að verðmæti 13,2 milljarða króna miðað við 17,8 milljarða króna á fiskveiðiárinu 2008/2009. Verðmæti útflutts óunnins afla dróst því saman um rúm 26% á milli fiskveiðiára. Útflutt magn dróst einnig verulega saman, úr 58.978 tonnum á fiskveiðiárinu 2008/2009 niður í 38.201 tonn á nýliðnu fiskveiðiári eða um rúm 35%.

Af einstökum tegundum er flutt mest út af ýsu eins og undanfarin fiskveiðiár. Útfluttur ýsuafli á fiskveiðiárinu 2009/10 var 10.736 tonn að verðmæti 3,7 milljarðar króna en var 22.312 tonn fiskveiðiárið 2008/09 að verðmæti 6,5 milljarðar króna.

Útflutningur á óunnum ísuðum þorski dróst saman á milli fiskveiðiáranna sem litið er til. Útfluttur þorskafli fiskveiðiárið 2008/09 var 8.803 tonn að verðmæti 3,3 milljarða króna en var 4.837 tonn fiskveiðiárið 2009/10 að verðmæti 2 milljarðar króna. Þetta er samdráttur um rúm 45% í magni og tæp 39% í verðmæti. Samdráttur var í útflutningi á óunnum ísuðum fiski í öllum helstu tegundum. Mestur er samdrátturinn í keilu eða rúm 73% í magni. Minnstur var samdrátturinn í karfa eða um 15%, úr 12.183 tonnum í 10.352 tonn á síðsta fiskveiðiári og er nú útflutt á þennan hátt nánast sambærilegt magn af karfa og ýsu. Síðustu tvo fiskveiðiárin á undan var flutt út langt um mest af ýsu. .

Á meðfylgjandi mynd má sjá þróun í  magni nokkurra tegunda sem fluttar eru út með þessum þætti, ef smellt er á myndina þá birtist hún stærri. Hér má sjá  töflu með nánari útlistun í magni og verðmætum á óunnum ísuðum afla sem fluttur var á erlenda fiskmarkaði síðustu 3 fiskveiðiár eftir helstu fisktegundum.

mynd_utflutt_magn_nokkurra_tegunda_thrju_fiskveidiar

 

 



Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica