Fréttir

Landaður botnfiskafli eftir höfnum 2007 til 2011

4.1.2012

 

Á árinu 2007 var 113.649 tonnum landað á höfnum höfuðborgarsvæðisins en á nýliðnu ár var landaður afli 147.054 tonn. Þetta er aukning upp á 29%. Höfuðborgarsvæðið jók einnig hlutdeild sína í lönduðum afla á landsvísu á ofangreindu tímabili úr 24,8% í 31,9%. Hlutdeild hafna á Norðurlandi vestra hefur minnkað úr 6,2% niður í 5,3% og á Austurlandi úr 12,2% niður í 9,2%.Hlutfall landaðs botnfiskafla eftir landshlutum

Miklar breytingar hafa orðið í lönduðu magni hjá einstaka höfnum. Á Breiðdalsvík var árið 2007 landað 108 tonnum  af botnfiski en á síðasta ári var hins vegar landað 2.582 tonnum. Umtalsverð aukning varð einnig á Þingeyri en þar fór aflinn úr 400 tonnum í 2.106 tonn á ofangreindu tímabili. Umtalsverð aukning hefur einnig orðið á nokkrum öðrum höfnum á ofangreindu tímabili. Þessa miklu aukningu í mörgum minni höfnum landsins má þakka tilkomu strandveiða.

Hins vegar hefur orðið samdráttur í lönduðu magni á fjölmörgum stöðum allt í kringum landið. Samdrátturinn hefur numið meira en 80% á fáeinum stöðum auk þess sem löndun hefur lagst af á öðrum. Meðal staða sem hafa mátt þola mikinn samdrátt er Akranes en þar er samdrátturinn tæp 84% sé litið til breytinga á lönduðu magni 2007 og 2011. Árið 2007 var 6.926 tonnum landað þar en í fyrra var aðeins landað 1.097 tonnum. Önnur höfn þar sem samdrátturinn í löndun á botnfiski er verulegur er Flateyri þar sem samdrátturinn nam rúmlega 77%.

Á nýliðu ári var engum botnfiski landað á Blönduósi, Hjalteyri og Skarðsstöð.

Hér má nálgast Excel skjal með upplýsingar um landaðan botnfisk eftir höfnum og landsvæðum á tímabilinu frá 2007 til 2011 bæði í tonnum talið og í hlutfallstölum undir sitthvorum flipa skjalsins. Þar kemur m.a. fram að mestum botnfiski var landað á síðasta ári í Reykjavík eða 96.960 tonnum. Sú höfn sem kemur næst í magni er Hafnarfjörður sem er þó aðeins hálfdrættingur með 49.899 tonn.

Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner4
Þetta vefsvæði byggir á Eplica