Fréttir

Löndun uppsjávarafla

31.1.2012

Mynd þessi sýnir að yfir 60% uppsjávarafla er landað á AusturlandiFiskistofa hefur tekið saman upplýsingar um landað magn af uppsjávarfiski eftir höfnum og landsvæðum frá 2007 til 2011.
Á síðasta ári var mestum uppsjávarafla landað í Neskaupsstað eða 171.507 tonnum. Næstmestum afla var landað í Vestmannaeyjum eða 153.049 tonnum og því næst á Vopnafirði, 75.987 tonnum.                    
Eins og gefur að skilja eru miklar sveiflur í lönduðu magni milli ára. Nefna má að á árinu 2009 var aðeins landað einu tonni af uppsjávarfisk í Reykjavík en í fyrra var landað þar rúmum 25 þúsund tonnum. Á síðustu öld var Siglufjörður löngum mikil síldarhöfn eins og frægt er en þar var nánast engum uppsjávarafla landað nokkur undanfarin ár þar til á síðasta ári þegar tæplega 700 tonnum af síld og makríl var landað þar. Alls var landað meira en þúsund tonnum á 16 höfnum á síðasta ári en á 15 höfnum 2010.
Landanir á uppsjávarfiski hafa lagst af á nokkrum stöðum á landinu, m.a. í Bolungarvík sem á árum áður var helsta löndunarhöfn fyrir uppsjávarfisk á Vestfjörðum. Sömuleiðis hefur nánast enginn uppsjávarafli komið að landi í Reykjavík, á Akureyri og í Raufarhöfn, en Raufarhöfn var ein helsta löndunarhöfn fyrir norsk-íslenska síld á 7. áratug síðustu aldar.
Sé athyglinni beint að landsvæðum þá er mestum uppsjávarafla landað á Austfjörðum. Á síðasta ári var 442 þúsund tonnum landað þar eða 46,8% uppsjávaraflans. Hlutfallið er þó nokkru lægra en fyrir fimm árum þegar hlutfallið var 63,6%. Hafnirnar á Suðurlandi koma næst á eftir Austurlandi með 16,4%. Um er að ræða tvær hafnir, Vestmannaeyjar og Þorlákshöfn, og er mest af þessum afla landað á fyrrgreinda staðnum.
Hér má nálgast Excel skjal með upplýsingar um landaðan uppsjávarfisk eftir höfnum og landsvæðum á tímabilinu frá 2007 til 2011 bæði í tonnum talið og í hlutfallstölum undir sitt hvorum flipa skjalsins.

Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica