Fréttir

Botnfiskveiðar Færeyinga við Ísland 2012

4.7.2012

 

Alls voru 9 færeyskir línu- og handfærabátar að veiðum í íslenskri lögsögu í maímánuði. Samkvæmt löndunartölum frá Færeyjum nam heildaraflinn 539 tonn. Mest var um keilu í aflanum, 158 tonn og þorskaflinn var 147 tonn.

Fyrstu fimm mánuði ársins hafa færeysk skip veidd tæp 1.569 tonn af botnfiski í íslenskri lögsögu. Á sama tíma í fyrra var aflinn heldur minni eða tæp 1.360 tonn. Heildarbotnfiskaflinn er því rúmlega 15% meiri í ár en á síðasta ári. Þorskafli færeysku skipanna er kominn í 383 tonn miðað við 347 tonn á sama tíma í fyrra en leyfilegur heildarafli færeyskra skipa í þorski á þessu ári eru 1.200 tonn.Atlantic_cod

Nánar má sjá skiptingu afla erlendra ríkja eftir tegundum og mánuðum, bæði aflatilkynningar til Landhelgisgæslunnar og nýjustu löndunartölur hér.

Senda grein

Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner6
Þetta vefsvæði byggir á Eplica