Rekstrarsvið
Um rekstrarsvið
Rekstrarsvið Fiskistofu hefur umsjón með þeim fjármunum sem stofnunin hefur
til umráða. Sviðið annast innheimtu sértekna Fiskistofu,
innkaup á vöru og þjónustu og frágang reikninga ásamt innheimtu á
veiðigjaldi og gjaldi í Fiskræktarsjóð.
Innan rekstrarsviðs fer fram gerð fjárlagatillagna og fjárhagsáætlana og
virkt eftirlit með kostnaði innan stofnunarinnar. Almennur rekstur
skrifstofu og starfsstöðva Fiskstofu heyrir undir sviðið, sem og umsjón með
húsnæði, farartækjum og símavörslu stofnunarinnar.
Rekstrarsvið hefur umsjón með nýsmíði og viðhaldi á hugbúnaði fyrir
Fiskistofu og Hafrannsóknastofnun. Meðal verkefna eru þróun og viðhald á
aflaupplýsingakerfi Fiskistofu og gerð ýmissa forrita vegna úrvinnslu gagna
og hönnun á innsláttarforritum fyrir ýmsar mælingar á vegum Hafró.
Rekstrarsvið sér um uppsetningu og tæknilegt viðhald á vefjum Fiskistofu.
Starfsfólk rekstrarsviðs sér um uppsetningu og hefur umsjón með netlögnum,
netbúnaði og hugbúnaði fyrir vinnustöðvar og miðlara ásamt uppsetningu
vélbúnaðar auk kerfisforritunar og kerfisstjórnar. Sviðið sinnir þjónustu við
almenna notendur, samskiptum við hafnir vegna GAFLs og uppsetningu og
aðhæfingu á hugbúnaði fyrir einkatölvur. Rekstrarsvið sér jafnframt um
gagnasafnastjórnun og ber ábyrgð á varðveislu tölvugagna.
Rekstrarsvið Fiskistofu skiptist í þrjár deildir: fjármáladeild,
hugbúnaðardeild og kerfisdeild.
Forstöðumaður er Elín Kristjana Sighvatsdóttir.

