Starfsmanna- og gæðasvið
Um starfsmanna- og gæðasvið
Starfmanna- og gæðasvið hefur yfirumsjón með starfsmanna-, gæða- og skjalamálum Fiskistofu ásamt innra eftirliti. Sviðið ber ábyrgð á að meðferð og afgreiðsla starfmannatengdra mála sé fagleg og er stjórnendum stofnunarinnar til aðstoðar og stuðnings í daglegum verkefnum og viðfangsefnum á sviði starfsmannastjórnunar. Sviðið ber ábyrgð á að vandað sé eins og kostur er til allra ráðninga hjá stofnuninni hvort heldur er tímabundinna eða ótímabundinna ráðninga og að farið sé eftir góðum stjórnsýsluháttum og stjórnsýslureglum allt frá því að undirbúningur að ráðningu hefst þar til nýr starfsmaður hefur verið ráðinn til starfa. Sviðið hefur yfirumsjón með nýliðamóttöku, starfsþróun starfsmanna og fræðslu ásamt því að finna leiðsögn og/eða námskeið við hæfi hverju sinni fyrir starfsmenn til að koma á móts þær þarfir sem skapast svo sem vegna nýrra verkefna, nýrra krafna eða breyttra starfa.
Starfsmanna- og gæðasvið hefur yfirumsjón með gæðakerfi Fiskistofu. Gæðakerfið er notað til að tryggja að unnið sé faglega og á samræmdan hátt að þeim verkefnum sem stofnunin ber ábyrgð á. Starfsmanna- og gæðasvið hefur yfirumsjón með skjalamálum Fiskistofu. Fiskistofa notar rafræna skjalastjórnun en um skjalavistunarkerfi hennar, skjalageymslur, skilaskyldu skjala o.fl. er farið eftir ákvæðum laga nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands. Starfsmanna- og gæðasvið veitir öðrum sviðum stofnunarinnar aðhald og stuðning til að tryggja fyrirmyndar skjalastjórnun hjá Fiskistofu.
Starfsmanna- og gæðasvið hefur jafnframt umsjón með innra eftirliti hjá stofnuninni.
Forstöðumaður er Inga Þóra Þórisdóttir.

