Veiðivottorð
Veiðivottorð
Sótt er um aðgang að veiðivottorðakerfi til Elínbjargar Ingólfsdóttur, elinbj@fiskistofa.is. Umsókninni þurfa að fylgja upplýsingar um nafn fyrirtækis, heimilisfang, kenntölu, netfang og símanúmer.
Þann 1. janúar 2010 tekur gildi reglugerð Evrópusambandsins (ESB) nr. sem fjallar aðgerðir gegn aðgangi fiskafurða á markaði ESB sem eiga uppruna sinn í ólöglegum veiðum. Þessi reglugerð felur m.a. í sér að öllum fiskafurðum þarf að fylgja svokallað veiðivottorð og öllum afurðum unnum úr afla erlendra skipa vinnsluvottorð.
Þessi undirsíða á vef Fiskistofu er sett upp tímabundið til þess að halda saman þeim upplýsingum sem safnast um framkvæmdina sem framundan er. Þessar nýju reglur fela í sér ný skjöl sem þurf að fylgja fiskafurðum inn á markaðssvæði ESB. Þau eru þrenns konar:
- Veiðivottorð: Vottorð fyrir afurðir unnar úr afla íslenskra skipa. Með þessu vottorði staðfesta íslensk stjórnvöld að aflinn hafi verið veiddur undir stjórn íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins. Samkvæmt þeim upplýsingum sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur fengið á að senda veiðivottorðið til innflytjanda sem kemur vottorðinu til lögbærra yfirvalda í sínu landi.
- Vinnsluvottorð: Sé afli unninn úr afurðum erlendra skipa þarf að fylgja sérstakt vottorð staðfest af Fiskistofu þess efnis að vinnslan hafi leyfi til að vinna aflann og að veiðivottorð frá fánaríkjum skipsins hafi fylgt aflanum við innflutning. Vinnsluvottorð er að finna hér, leiðbeiningar um útfyllingu þeirra er að finna hér.
- Staðfesting á því að afli erlendra skipa sem geymdur er á Íslandi hafi ekki verið unninn. Hér verður nýst við tollaskjöl eða svokallað E7 skjal sem Tollurinn gefur út.
Ísland hefur gert samkomulag við ESB um framkvæmd íslenskra veiðivottorða. Samkomulagið er að finna hér. Með þessu samkomulagi fær Ísland undanþágu frá eiginlegu veiðivottorði reglugerðarinnar gegn því að skila einfaldara íslensku vottorði. Megin upplýsingar vottorðsins eru tollaflokkur sendingarinnar (gámsins), nettó magn, fisktegund, þau veiðiskip og þær löndunardagsetningar aflans sem afurðin er unninn úr og móttakandi aflans á Evrópu endanum. Undirskrift útflytjanda er rafræn og stimpill Fiskistofu er rafrænn. Hér til hægri er að finna slóð á vottorðakerfi Fiskistofu og kynningu á því. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið sér um samskipti við erlend stjórnvöld vegna málsins. Frá og með áramótum er því mikilvægt að fiskvinnslur geti á öllum tímapunkti vinnslunnar gert grein fyrir uppruna (skipi og löndunardags.) þess hráefnis sem unnið er með.
Hér að neðan eru tenglar á fréttir og gagnleg skjöl vegna málsins sem hafa borist íslenskum stjórnvöldum og Fiskistofa hefur aðgang að. Jafnframt er vísað í upplýsingasíðu ESB um málið þar sem reglugerðina er að finna og aðrar upplýsingar sem framkvæmdarstjórnin hefur gefið út.
Afurðir undanskildar veiðivottorðum (listi) (frá 28.01.2010)
Tollaflokkar sem eru undanskildir veiðivottorðum (frá 30.12.2009)
Reglugerð 1005/2008 1005/2008 1005/2008 1005/2008 á íslensku (frá 23.12.2009)
Listi yfir lögbær stjórnvöld aðildarríkja ESB (þau stjórnvöld sem innflytjendur í hverju landi eiga að koma vottorðunum til) (frá 16.12.2009)
Aðgangur að veiðivottorðakerfi (frá 11.12.2009)
Beiðni íslenskra stjórnvalda um upplýsingar varðandi framkvæmd ESB við gildistöku reglugerðarinnar (frá 4.12.2009)
Samkomulag undirritað milli Íslands og ESB (frá 26.11.2009)
Fundur um IUU reglugerðina í Brussel (frá 30.10.2009)

