Tilkynningar
Byggðakvóti 2017/2018 (III)
Umsóknarfrestur fyrir neðangreind byggðarlög er til og með 7. febrúar 2018
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. ákvæðum reglugerðar nr. 604/2017 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2017/2018.
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðum byggðalögum, sbr. auglýsingu nr. 24/2018 í Stjórnartíðindum
- Tálknafjörð
- Dalvíkurbyggð (Dalvík, Árskógssandur og Hauganes)
- Grýtubakkahrepp
- Langanesbyggð (Þórshöfn og Bakkafjörður)
Vakin er athygli á því að umsóknin telst ekki gild nema samningur um vinnslu fylgi.
Umsókn skal skila í tölvupósti á byggdakvoti@fiskistofa.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2018