Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta: Eyrarbakki og Breiðdalsvík
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 557/2009 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2008/2009.
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í hlutaðeigandi byggðalögum sbr. auglýsingu nr. 832/2009 í Stjórnartíðindum:
Árborg (Eyrarbakki)
Breiðdalshreppur (Breiðdalsvík)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknarfrestur er til og með 23. október 2009.
Fiskistofa, 9. október 2009

