Tilkynning um veiðileyfissviptingar
Með vísan til 21. gr. laga nr 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, upplýsist eftirfarandi.
I.
Skip svipt veiðileyfi í nóvember 2009 á grundvelli 15. gr. laga nr.57/1996
1. Reynir GK 355, skipaskrárnúmer: 733. Útgerðaraðili: Grímsnes, Box 380, 232 Keflavík.
Þann 1. nóv. s.l., svipti Fiskistofa ofangreint skip leyfi til veiða í atvinnuskyni í fjórar vikur, frá 1. nóvember s.l. til 28. nóvember 2009, vegna brots sbr. 1. og 2. mgr. 15.gr. laga nr. 57/1996.
2. . Birta VE 8, skipaskrárnúmer: 1430. Útgerðaraðili: TT Luna ehf, Síðumúla 33, 108 Reykjavík.
Þann 2. nóv. s.l., svipti Fiskistofa ofangreint skip leyfi til veiða í atvinnuskyni í sex vikur, frá 2. nóvember s.l. til 13. desember 2009, vegna brots sbr. 2. mgr. 15.gr. laga nr. 57/1996.
II.
Skip svipt veiðileyfi á grundvelli 1.mgr. 17. gr. laga nr. 116/2006
1. Ragnar Alfreðs GK 183, skipaskrárnúmer 1511. Útgerðaraðili: Hampás ehf, Gerðarvegi 20a, 250 Garði.
Þann 8. desember s.l. svipti Fiskistofa ofangreint skip leyfi til veiða í atvinnuskyni, vegna vanskila á afladagbókarfrumriti vegna veiða bátsins í október 2009. Sviptingin gildir frá og með 18. desember 2009, þar til skil hafa verið gerð eða skýringar hafa verið gefnar á ástæðum vanskila.

