Tilkynningar

Byggðakvóti 2009/2010

Úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2009/2010

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, undirritaði í dag reglugerðir um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2009/2010. Reglugerðirnar eru samhljóða reglugerðum síðustu fiskveiðiára í öllum aðalatriðum. Verður sveitarstjórnum tilkynnt bréflega um hve mikið kemur í hlut hvers byggðarlags af þeim 3.885 þorskígildistonnum sem til ráðstöfunar eru, í framhaldi af birtingu reglugerðanna í B-deild Stjórnartíðinda.

Eitt af markmiðum laga um stjórn fiskveiða er að treysta atvinnu og byggð í landinu öllu. Ákvæði um byggðakvóta voru á sínum tíma sett m.a. með hliðsjón af því markmiði.

Ráðherra stefnir á að leggja fram í ríkisstjórn lagafrumvarp um breytingu á úthlutun byggðakvóta á þann veg, að fiskiskip sem framselja eða flytja frá sér meiri aflaheimildir í þorskígildum talið en þeir fá framselt eða flutt til sín, komi ekki til greina við úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2010/2011 og síðar. Með þessari aðgerð er talið að markmið fiskveiðistjórnarlaganna um tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu verði betur náð.Fréttatilkynninguna í heild sinni og reglugerða- og auglýsinga breytingarnar er að finna hér.



 

Tungumál síðu



banner2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.