Tilkynningar

Grásleppuleyfishafar

Grásleppuleyfishafar - Skila skýrslum vegna veiðanna 2009

Fiskistofa vill vekja athygli á því að enn hefur ekki verið skilað inn uppgjörsblöðum vegna grásleppuveiða 2009 fyrir allmargra báta sem stunduðu grásleppuveiðar á vertíðinni 2009.

Næstu daga mun Fiskistofa senda út eyðublöð vegna umsókna til grásleppuveiða árið 2010, því viljum við ítreka við þá sem að ekki hafa staðið skil á skýrslum/uppgjörsblaði fyrir árið 2009 að gera slíkt hið fyrsta. Grásleppuveiðileyfi fyrir árið 2010 verður ekki veitt fyrr en endanleg skýrsluskil vegna ársins 2009 liggja fyrir og uppgjörsblaði skilað.



 

Tungumál síðu



banner6
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.