Tilkynningar

Veiðileyfasviptingar

Veiðileyfasviptingar í janúar 2010

10.2.2010

Með vísan til 21. gr. laga nr 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, upplýsist eftirfarandi.

I.

Skip svipt veiðileyfi í janúar 2010 á grundvelli 14. gr. laga nr 57/1996

1.      Ársæll Sigurðsson HF 80, skipaskrárnúmer:1873.  Útgerðaraðili: Sæli ehf, Smyrlahrauni 17, 220 Hafnafjörður.

Þann 25. janúar s.l svipti Fiskistofa ofangreint skip leyfi til veiða í atvinnuskyni, vegna afla umfram aflaheimildir.  Skipið fékk leyfið að nýju, þann 28. jan. eftir að aflamarksstað þess hafði verið lagfærð.

 

2.  Sægrímur GK 525, skipaskrárnúmer: 2101.  Útgerðaraðili:  Grímsnes ehf, Box 380, 232 Keflavík.

 Þann 20. janúar s.l svipti Fiskistofa ofangreint skip leyfi til veiða í atvinnuskyni, vegna afla umfram aflaheimildir.  Skipið fékk leyfið að nýju, þann 26. jan. eftir að aflamarksstað þess hafði verið lagfærð.

II

Skip svipt veiðileyfi í janúar á grundvelli 15. gr. laga nr.57/1996

1.  Selma Dröfn BA 21, skipaskrárnúmer: 2658.  Útgerðaraðili: Perlufiskur ehf, Bjarkargötu 8, 450 Patreksfjörður.

Þann 19. jan. s.l., svipti Fiskistofa ofangreint skip leyfi til veiða í atvinnuskyni í þrjár vikur vegna framhjálöndunar, frá 19. jan s.l. til 9.febrúar 2010.

 III.

Skip svipt veiðileyfi á grundvelli 1.mgr. 17. gr. laga nr. 116/2006

1. Halldór NS 302, skipaskrárnúmer 1928.  Útgerðaraðili: Halldór fiskvinnsla ehf, Bæjarási 1, 685 Bakkafirði.

Þann 28. desember s.l. svipti Fiskistofa ofangreint skip leyfi til veiða í atvinnuskyni,  vegna vanskila á afladagbókarfrumriti vegna veiða bátsins í nóvember 2009.  Sviptingin gildir frá og með 12. janúar 2010, þar til skil hafa verið gerð eða skýringar hafa verið gefnar á ástæðum vanskila. 

 

 




Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica