Tilkynningar
Ný reglugerð um línuívilnun
Þann 1. júní 2010 tekur gildi ný reglugerð um línuívilnun, þar sem breyting verður á heimild til löndunar umfram aflaheimildir við veiðar á línu.
Með þessari breytingu verða til tveir flokkar línuívilnunar annars vegar 20% fyrir dagróðrabáta sem róa með línu sem beitt er í landi og hins vegar 15 % fyrir dagróðrabáta sem róa með línu sem stokkuð er upp í landi. Jafnframt er ekki lengur gerð krafa um að landað sé í sömu höfn og lagt er frá við upphaf veiðiferðar.

