Tilkynningar
Byggðakvóti 2009/2010
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin byggðarlög skv. Ákvæðum reglugerðar nr. 82/2010 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2009/2010
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunarreglna í neðanskráðu byggðalagi sbr. auglýsingu nr.513/2010í Stjórnartíðindum.
Strandabyggð (Hólmavík)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér. Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2010.
Fiskistofa 16. júní 2010

