Veiðileyfissviptingar
Tilkynning um veiðileyfissviptingar í maí
Með vísan til 21. gr. laga nr 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, upplýsist eftirfarandi.
I.
Skip svipt veiðileyfi í maí 2010 á grundvelli 14. gr. laga nr 57/1996
1. Maron GK 522, skipaskrárnúmer: 363. Útgerðaraðili: Skarfaklettur ehf, Furuási 6, 210 Garðabæ.
Þann 5. maí. s.l., svipti Fiskistofa ofangreint skip leyfi til veiða í atvinnuskyni, vegna afla umfram aflaheimildir. Skipið fær leyfið að nýju, þegar að aflamarksstað þess hefur verið löguð.
II.
Skip svipt veiðileyfi á grundvelli 1.mgr. 17. gr. laga nr. 116/2006
1. Séra Jón ÍS 179, skipaskrárnúmer 2012. Útgerðaraðili: Sækir ehf, Smáratúni 14, 800 Selfossi.
2. Birta VE 8, skipaskrárnúmer 1430. Útgerðaraðili: TT Luna ehf, Síðumúla 33, 108 Reykjavík.
Þann 26. maí s.l. svipti Fiskistofa ofangreind skip leyfi til veiða í atvinnuskyni, vegna vanskila á afladagbókarfrumriti vegna veiða bátanna í mars 2010. Sviptingin gildir frá og með 7. júní 2010, þar til skil hafa verið gerð eða skýringar hafa verið gefnar á ástæðum vanskila.

