Tilkynningar

Frestur til flutnings veiðiheimilda

11.7.2012

Í 3. mgr. 12. gr. reglugerðar nr. 689/2011, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2011/2012, er kveðið á um frest til að flytja aflahlutdeildir milli skipa.

Samkvæmt ofangreindu reglugerðarákvæði og með hliðsjón af stjórnsýslulögum verða umsóknir um staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflahlutdeilda og krókaaflahlutdeilda milli skipa, ásamt fullnægjandi fylgigögnum, að hafa borist Fiskistofu eigi síðar en 31. júlí 2012, eigi flutningurinn að hafa áhrif á úthlutun fiskveiðiársins 2012/2013.

Fiskistofa vill vekja sérstaka athygli á að vegna breytinga sem gerðar hafa verið á lögum um stjórn fiskveiða getur Fiskistofa einungis tekið tillit til þeirra tilkynninga sem berast innan tilskilins frests ásamt öllum tilskildum gögnum.


Tungumál síðu


Leita á vefnum



banner2
Þetta vefsvæði byggir á Eplica