Tilkynningar
Sérstök makrílúthlutun í A-flokki
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur mælt fyrir um að bjóða skuli skipum í A-flokki til kaups 1.965 tonn af makríl sbr. reglugerð nr. 711/2019 um ráðstöfun á viðbótaraflaheimildum í makríl.Þær útgerðir sem hug hafa á að fá úthlutað makrílheimildum gegn greiðslu þurfa að sækja um fyrir miðnætti 10. september með tölvupósti á fiskistofa@fiskistofa.is
Úthlutun fer fram 16. september og verður aflamarkinu skipt jafnt milli umsækjenda sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar. Hvert skip í A-flokki á rétt á einni umsókn.