Landanir
Landanir
- Grásleppa skal vegin á hafnarvog við löndun afla í löndunarhöfn skv. 7. gr. reglugerðar 745/2016
- Við vigtun grásleppuhrogna skal brúttóvigta aflann og skrá fjölda tunna eða kara.
- Við umreikning landaðra grásleppuhrogna í heila grásleppu skal nota margföldunarstuðulinn 3,4 að frádreginni þyngd íláta.
- Vigta skal og skrá í GAFL allan rauðmaga.
- Skylt er að hirða og koma með að landi öll þorsk- og ufsahrogn.
- Skylt er að koma með að landi alla þorsklifur, sem og alla ufsa-, löngu-, keilu- og skötuselslifur.
- Mikilvægt er að öll sjávarspendýr og fuglar sem koma í grásleppunet séu skráð í afladagbók.
Kaupendur grásleppu
Kaupendur grásleppu þurfa að skila vigtar og ráðstöfunarskýrslum (VOR-skýrslum), þar sem fram koma upplýsingar um ráðstöfun á hvelju og hrognum.