Tilhögun veiða
Áður en veiðiferð hefst skal útgerð sjá til þess að báturinn hafi þær aflaheimildir sem dugi fyrir áætluðum meðafla.
Í sömu veiðiferð er óheimilt að stunda aðrar veiðar en hrognkelsaveiðar.
Veiðitími
- Grásleppunet skal ekki leggja fyrir klukkan 8:00 fyrsta dag gildandi leyfis.
- Öll grásleppunet skal draga úr sjó fyrir lok leyfistímabils komi til þess að leyfi verði felld út gildi þegar hámarksafala er náð.
- Grásleppunet skulu tekin á land síðasta dag sem grásleppuleyfi er í gildi. Ekki er heimilt að taka upp net eftir annan bát á fyrsta degi grásleppuleyfis.
Netalagnir og vitjun neta
Teinalengd neta
Hverjum bát er heimilt að hafa samnlagða teinalengd allt að 7.500 metra á vertíð. Netalengd miðast við teinalengd(efritein/flottein nets. Eingöngu er heimilt að nota net sömu teinalengdar á hverri vertíð.
Net við friðlýst æðavarp
Sérstakar reglur gilda um netalagnir nálægt friðlýstu æðavarpi
Vitjun neta
Draga skal net ekki síðar en þremur sólarhringum eftir að þau hafa verið lögð í sjó. Undantekning er þegar veður hamlar sjósókn, þá þarf skiptsjóri að senda tilkynningu á graslpeppa@fiskistofa.is um að ekki hafi verið hægt að sækja net vegna veðurs.
Týnd net
Týnist net í sjó skal slæða þau upp. Takist það ekki á skipstjóri að senda tilkynning til Landhelgisgæslunnar og til Fiskistofu og greina eins nákvæmlega og hægt er frá staðsetningu þeirra.