Grásleppuvertíðin: afli og meðafli
Fiskistofa hefur tekið saman yfirlit yfir afla og meðafla grásleppubáta á vertíðinni sem stóð frá 10. mars og fékk óvæntan endi 2. maí í tilefni af endurmati Hafrannsóknarstofnunar á stöðu stofnsins og aflabrögðum. Margar útgerðir gátu því ekki stundað veiðarnar í þá 44 daga sem heimilaðir höfðu verið. Þess skal getið að bátar í Breiðafirðinum sem vanalega byrja um eða eftir 20. maí fá leyfi til veiða í 15 daga frá 20. maí eða síðar á þessu ári.
Það voru 163 grásleppubátar sem lönduðu um 5.290 tonnum í heildina á þessu tímabili nú í vor. Heildarafli í grásleppu var tæplega 4.685 tonn og meðafli var því um 605 tonn.
Það er afar mikilvægt að skrá allan meðafla á veiðunum bæði í fiski sem og sel og sjófuglum. Nákvæm skráning á öllum meðafla er forsenda þess að hægt sé að sýna fram á það gagnvart vottunaraðilum og stjórnvöldum þeirra ríkja þar sem aflinn er fluttur inn að staðgóð þekking og vísindalegar rannsóknir liggi að baki veiðunum og þeim reglum sem um þær gilda.Hér fylgja margvíslegar upplýsingar um veiðarnar í mars og apríl (klikka á myndirnar til að stækka):
Afli eftir löndunarhöfnum, fjöldi báta og landana og hlutfall meðafla
Myndin sýnir að hafnir með flesta báta, landanir og afla voru Bakkafjörður, Ólafsfjörður og Siglufjörður. Hæst hlutfall meðafla var á Ársskógssandi, Ólafsvík og Dalvík. Nokkrar hafnir eru ekki með neinn skráðan meðafla en þær eru Djúpivogur, Eskifjörður, Hvammstangi, Neskaupstaður og Norðurfjörður.
Tuttugu aflahæstu grásleppubátarnir og hlutfall meðafla
Athygli vekur að aflahæstu bátarnir í grásleppu eru ekki aflahæstir þegar tekið er mið af meðaflanum eins og gert er á myndinni hér að ofan.
Grásleppubátarnir með hæsta og lægsta hlutfall meðafla á vertíðinni
Ástæður breytilegs hlutfalls meðafla geta verið
margvíslegar. Það er
hlutverk Fiskistofu að hafa eftirlit með að skráning og vigtun á sjávarafla sé sem
réttust. Til þess að rækja það hlutverk sem best beitir Fiskistofa
margvíslegum aðferðum og má í því sambandi nefna fræðslu og samvinnu við útgerðir
og vinnslur, áhættugreiningu og aðgengi allra að upplýsingum um veiðar
og afla.
Heildargögn yfir afla og meðafla allra grásleppubáta vorið 2020
Yfirlit yfir báta eftir höfnum og upplýsingar um hverja einstaka veiðiferð (PDF)
Talnagögn yfir allan afla í öllum veiðiferðum grásleppubáta (Excel)