Umframafli í strandveiðum í viku 5
Leyfi til strandveiða hefur verið gefið út til 641 báts og er landaður afli strandveiðibáta í dag föstudaginn 11. júní samtals 4.024.334 kg., sem er 35,42% af þeim heimildum (11.100 tonn) sem úthlutað er til strandveiða á fiskveiðiárinu 2020/2021.
Á strandveiðum má hver bátur landa að hámarki 650 kg. af slægðum afla í þorskígildum talið í hverri veiðiferð. Í fimmtu viku strandveiða 31. maí -. 4. júní lönduðu 185 skip yfir leyfilegt magn, samtals 6.524 kg.
Meðfylgjandi myndi sýnir yfirlit yfir umframafla í fimmtu viku. Bláu súlurnar sýna þau skip sem lönduðu alls 100 kg. eða meira yfir leyfilegt magn. Gráu súlurnar sýna heildarmagn umframafla niður á dagana 31. maí – 4. júní og var umframafli mestur þann 3. júní sl. eða 3.285 kg.
Grænu súlurnar sýna umframafla eftir svæðum. Mestur umframafli kom á svæði A eða rúm 4.960 kg.
Ef skoðað er yfirlit yfir strandveiðar í maí mánuði má sjá að umframafli var samtals 32.606 kg. á tímabilinu. Alls lönduðu 319 kg. skip yfir 100 kg. eða meira. Mestur umframafli var á svæði A, alls 22.636 kg. og var mestum umframafla landað á Patreksfirði 6.851 kg.
Gögn sem Fiskistofa birtir byggja á fyrirliggjandi aflaskráningu á hafnarvog. Framangreindar upplýsingar eru birtar með þeim fyrirvara að skráning á hafnarvog sé lokið.