Fara beint í efnið

Útflutningur

Ákveðnar reglur gilda um útflutning á fiski og sjávarafurðum sem fylgja þarf til þess að yfirvöld í viðkomandi löndum heimili innflutninginn.

Íslenskir útflytjendur þurfa hafa eftirfarandi í huga:

  • Nauðsynlegt er að sjávarafurðum fylgi veiðivottorð útgefið af Fiskistofu til þess að fá fyrir afurðirnar aðgang að mörkuðum í Evrópusambandinu, Bandaríkjunum og Japan. Mörg önnur lönd krefjast einnig slíkra vottorða.

  • Sé afla erlendra fiskiskipa landað hérlendis (eða hann fluttur inn) og hann síðan unninn innanlands til útflutnings til Evrópusambandsins þarf að fylgja honum vinnsluvottorð

    útgefið af Fiskistofu

  • Við útflutning á óunnum fiski þarf seljandi aflans að gera grein fyrir sölunni til útlanda með því að skila vigtar- og ráðstöfunarskýrslu (VOR-skýrslu) til Fiskistofu. Þetta á bæði við um afla sem landað er beint úr fiskiskipi í gám (þar á útgerðin að skila skýrslunni) og afla sem keyptur er af útgerð eða á markaði og síðan fluttur óunninn út.

  • Með út- og innflutningi á sjávarlífverum í útrýmingarhættu þarf að fylgja CITES vottorð sem Fiskistofa gefur út.